Kristín Hólm í þjálfarateymi kvennaliða ÍHÍMynd/ÍHÍ

Kristín Hólm í þjálfarateymi kvennaliða ÍHÍ

Íshokkísambandið og Kristín Hólm Geirsdóttir hafa samið um að Kristín verði nýr styrktarþjálfari kvennalandsliða Íslands í íshokkí. Kristín hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð síðustu ár og starfar í dag hjá sænska knattspyrnusambandinu sem frammistöðustjóri (performance manager) fyrir A landslið kvenna. ÍHÍ greindi frá.

Kristín er búsett í Stokkhólmi og mun sinna landsliðinu fyrst og fremst með fjarþjálfun en hún verður á Íslandi frá 12. desember til 5. janúar og mun á þeim tíma ná að hitta æfingahópa kvennalandsliða. Kristín hélt fyrirlestur fyrir kvennalandsliðið á milli jóla og nýárs 2024 sem mikil ánægja var með hjá ÍHÍ. Þar var tekið fyrir hvað leikmenn gætu gert sjálfar til þess að styrkja sig enn frekar og flýta fyrir endurheimt. 

Kristín hefur getið sér gott orð fyrir að vera um árabil styrktarþjálfari Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur unnið með Elísabetu Gunnarsdóttur.  Árangur hennar með Kristianstad liðið vakti mikla athygli, en ekkert lið í Svíþjóð hefur náð öðrum eins árangri með fyrirbyggjandi úrræði fyrir leikmenn sína.

Sjá einnig: Kristín Hólm ráðin í nýtt þjálfarateymi sænska landsliðsins í fótbolta

Þessi góði árangur varð síðan til þess að sænska knattspyrnu sambandið réði Kristínu, fyrst sem sérstakan styrktarþjálfara fyrir undir 23 ára landslið kvenna, og síðan í vor var síðan samið við hana um þessa nýju stöðu hjá sænska sambandinu.

„Þetta eru frábærar fréttir og mikill fengur fyrir það uppbyggingarstarf sem verið hefur í gangi með kvenna landsliðin okkar síðustu ár,“ segir Jón Benedikt Gíslason, þjálfari A-landsliðs kvenna. 

Kristín er Akureyringur, með Bs próf í Sport Coaching and Performance frá Waterford Institute of Technology á Írlandi og svo meistarapróf MSc frá University of Lincoln, í Bretlandi í Sport Science.

COMMENTS