Hljómsveitin Stóriboli sem er með aðsetur í Eyjafjarðarsveitinni heldur tónleika á Leyni í Göngugötunni á Akureyri laugardagskvöldið 21. mars klukkan 21. Hljómsveitina skipa þeir Helgi og Bergsveinn Þórssynir frá Kristnesi, Hafþór Önundarson frá Syðri-Tjörnum og Agnar Sigurðarson frá Svalbarðsströnd.
Þessir kumpánar kynntust fyrir nokkrum misserum hjá Freyvangsleikhúsinu og hafa æft saman um nokkra hríð og hafa spilað saman fullt af rokki og róli. Hafþór mun einn og sér hita upp fyrir Stórabola, með frumsömdum kassagítarsmellum.
Stóriboli var fyrst nefndur Kuldaboli en í tilkynningu frá sveitinni hér að neðan má lesar nánar um nafnaskiptin og sjálfa hljómsveitina.
Kuldaboli verður Stóriboli
Þau tíðindi urðu nýverið í norðlensku hljómsveitarlífi að hljómsveitin Kuldaboli kom fram í fyrsta sinn. Þetta voru tónleikar í Kaktusi þar sem hljómsveitin kom fram ásamt öðru bandi sem kennt er við Davíð Mána sem Akureyringar ættu að vera farnir að kannast við. Enda hefur hann verið duglegur við tónleikahald undanfarið. Jæja en smá vesen kom í ljós skömmu síðar þegar kvörtun barst sunnan að landi, þess eðlis að fyrir löngu hefði verið stofnuð hljómsveit undir nafninu „Kuldaboli“ og getið sér frægðar í raftónlistarsenunni. Þá var ekki annað að gera en að breyta nafninu þannig að hin glænýja hljómsveit Kuldaboli heitir nú Stóriboli, í höfuðið á nautinu sem skessurnar í ævintýrinu um hana Búkollu notuðu til ýmissa stórræða. Hljómsveitina Stórabola skipa þeir Helgi og Bergsveinn Þórssynir frá Kristnesi. Bergsveinn spilar á bassa og Helgi syngur og leikur á hringlu og sitthvað lauslegt. Hafþór Önundarson, Grindvíkingur úr Eyjafjarðarsveitinni spilar á gítar og syngur og Agnar Sigurðarson leikur á trommur. Hljómsveitin einbeitir sér að tónlistarstefnu þeirri sem nefnd hefur verið rokk og ról. Þeir Helgi og Bergsveinn (Beggi) hafa um árabil spilað með Helga og hljóðfæraleikurunum sem láta lítið fyrir sér fara þessa dagana. Þó allt sé opið með það, að sú sveit taki lagið einhver tíma þegar vel viðrar. Hafþór gítarleikari og bakraddasöngvari á allslags tónlistarferil að baki suður með sjó og út um allt. Hann grípur líka í kassagítar einn og sér og bregður sér í hlutverk trúbadors með frumsamda tónlist þegar það á við. Allir meðlimir Stórabola eiga það sameiginlegt að hafa notið þess að taka þátt í leikstússi og spileríi í Freyvangi í Eyjafjarðarveit og þar var á vissan hátt grunnurinn lagður. Enda er Freyvangsleikhúsið annáluð uppspretta hæfileikafólks.
Næstu tónleikar Stórabola hafa þegar verið ákveðnir. Þeir verða haldnir á Akureyri í Tónleikarýminu Leyni sem er inn af Leynibarnum í Göngugötunni. Tónleikarnir verða á laugardagskvöldinu 21 mars og hefjast kl 21.00. Gítarglamrarinn, hinn títt nefndi Hafþór mun hefja tónleikana með nokkrum lögum úr eigin smiðju áður en Stóriboli stígur á stokk.
Helgi hnoðar saman textum hljómsveitarinnar í erg og gríð. Þeir eru allir á íslensku, gott ef ekki afdala norðlensku og fjalla um lífið og tilveruna. Ekki síst ástina og frostaveturinn 1882. Það var orðið tímabært að sá frostavetur fengi sitt lag þar sem Rögnvaldur gáfaði hafði þegar ort um frostaveturinn 1918 og þorraþræl 1866 eftir Kristján Jónsson þekkja allir. Annars er öllum sem áhuga hafa á hljómsveitinni Stórabola bent á að hægt er að hlýða á upptökur af tónleikunum í Kaktusi á Youtube undir Textavarpið XIX kuldaboli. En Texatavarpið er afurð Egils þess sem kunnur er undir nafninu Drengurinn fengurinn og er ein af máttarstoðum Lystasmiðsmiðjunnarar Kaktusar, sem unnið hefur þrekvirki í útbreiðslu fagnaðarerindis tónlistarinnar. Allt efni Stórabola er frumsamið og sumt verður algjörlega frumflutt á tónleikunum á Leyni, eins og til dæmis lögin „1882″ og „ég elska þig í leyni“.


COMMENTS