Kvenfélagið Hjálpin færði viðbragðssveit SAk töskur
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Kvenfélagið Hjálpin í Eyjafjarðarsveit færði nýverið viðbragðssveit Sjúkrahússins á Akureyri átta töskur fyrir hópslysabúnað að gjöf, fjórar stórar og fjórar minni. Þetta kemur fram í tilkynningu Sjúkrahússins á Akureyri í dag.
Töskurnar eru ætlaðar undir hópslysabúnað sem sveitin tekur með sér á vettvang ef hópslys verður. Með gjöfinni getur viðbragðssveitin endurnýjað töskurnar sínar og skipulagt búnaðinn betur svo auðveldara sé að finna það sem þarf á vettvangi.
„Sjúkrahúsið á Akureyri og viðbragðssveit SAk færa konunum í Kvenfélaginu Hjálpinni kærar þakkir fyrir höfðinglega gjöf,“ segir í tilkynningu.
Tengdar greinar
Uppfært: 23. nóvember 2026










