Landsmóti skáta slitið eftir ævintýralega viku á Hömrum

Landsmóti skáta lauk með lokahátíð í gærkvöldi þar sem hundruðir skáta kvöddu eftir viku sem einkenndist af ævintýrum, áskorunum og ógleymanlegri samveru. Mótið hefur verið fullt af lífi frá morgni til kvölds og þátttakendur nýtt hvert augnablik til að læra, skapa og njóta útivistar.
Dagskrá mótsins var fjölbreytt og gaf skátum tækifæri til að prófa ótal nýja hluti. Meðal þess sem boðið var upp á voru LARP, útieldun, kleinugerð, kolagerð, ratleikur um Akureyri, siglingar, gönguferðir, trjáhúsagerð, súrringar, þæfing, axarkast og drullubolti, auk fjölda annarra verkefna sem reyndu á hugvit, samvinnu og leiðtogafærni.
Fjölskyldubúðir voru afar vel sóttar og fjölmargir gestir lögðu leið sína á mótssvæðið til að upplifa stemninguna, kynnast skátastarfinu og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.
Einn af hápunktum mótsins var lokahátíðin þar sem frábær hljómsveit skáta steig á stokk og stýrðu hátíðinni, þá stigu á svið hressir skátar með skemmtiatriði og Páll Óskar lauk kvöldinu með tónleikum fyrir þátttakendur. Þar ríkti einstök stemning þegar skátar sungu, dönsuðu og fögnuðu saman vel heppnuðu móti áður en leiðir skildu.
Landsmót skáta er stærsti viðburður skátahreyfingarinnar á Íslandi og markmið þess er að efla vináttu, samvinnu, útivist og persónulegan þroska ungs fólks. Að loknu móti halda þátttakendur heim með nýja reynslu, ný vináttubönd og minningar sem munu fylgja þeim um ókomin ár.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










