MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Langstærsta Pollamótið í körfuknattleik frá upphafi

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
mynd1
Ljósmynd: Helgi Heiðar Jóhannesson· kaffid.is

Pollamót Þórs og Skógarbaðanna í körfuknattleik fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri 2. og 3. október. Aldrei hafa fleiri lið tekið þátt á mótinu (39) og að sama skapi hafa keppendur aldrei verið fleiri (355). Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Þórs þar sem segir að Pollamótið í ár hafi án nokkurs vafa verið það best heppnaða til þessa.

Lið Dagsbrúnar sigraði í Pæjudeildinni (20 ára og eldri konur) eftir framlengdan leik við Draumaliðið, sem kom inn í deildina í ár en allir leikmenn liðsins hafa spilað fyrir kvennalandslið Íslands í körfuknattleik. Grjóti Juniors stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða keppni við Only Hsuman í Polladeildinni (25 til 39 ára karla). Loks unnu Berry and the Pace-makers Lávarðadeildina (karlar 40 ára og eldri) eftir að hafa sigrað UBK. Flottustu búningana á mótinu áttu Trodd’essu og bestu tilþrif mótsins áttu Snæfellsgellur og Fleiri Snæfellsgellur fyrir skemmtilega dansrútínu.

Nánari umfjöllun má finna á vef Þórs ásamt fleiri skemmtilegum myndum.

Tengdar greinar

Uppfært: 5. október 2026