MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Leggjast gegn hækkun framfærsluviðmiða erlendra stúdenta

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
haskoliak
Háskólinn á Akureyri.· kaffid.is

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri leggst opinberlega gegn fyrirhugaðri hækkun framfærsluviðmiða erlendra námsmanna í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag. Félagið hefur skilað umsögn þess efnis inn í samráðsgátt stjórnvalda.

Samkvæmt kynningu stjórnvalda myndi mánaðarlegt framfærsluviðmið námsmanna og doktorsnema hækka úr tæpum 260 þúsund krónum í tæpar 376 þúsund krónur. Það er u.þ.b. 45% hækkun. SHA telur að þessi hækkun geti útilokað fólk frá námi hér á landi og gert núverandi stúdentum erfitt fyrir að halda námi sínu áfram.

„Að flytja til annars lands í nám er stór ákvörðun. Stúdentar finna sér húsnæði, skipuleggja fjármögnun námsins og byggja upp nýtt líf, stundum með maka og börnum. Þau þurfa að geta treyst því að fjárhagslegum forsendum námsins verði ekki kollvarpað á miðjum námsferli.“

Tilkynningu SHA í heild sinni má finna með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 17. nóvember 2026