Hjónin Slavko og Karin Spanjol, standa að baki nýjum matarvagni á miðju Hafnarstræti á Akureyri. Hjónin, sem koma frá Króatíu og Eistlandi, kynntust á Íslandi og létu draum rætast þegar þau opnuðu Fjaka crêperie matarvagninn.
Saga hjónanna á Íslandi hófst fyrir tíu árum þegar leiðir þeirra lágu saman eitt sumar í Mývatnssveit. Eftir fjögur ár í Reykjavík fundu þau köllunina til að flytja aftur norður yfir heiðar árið 2020.
„Við vildum einfaldara og betra líf fyrir okkur og dætur okkar tvær. Í dag erum við handviss um að það hafi verið rétt ákvörðun að skipta höfuðborginni út fyrir friðinn á Akureyri,“ segja þau í samtali við Kaffið.is
Slavko er enginn nýgræðingur í eldhúsinu en hann starfaði sem kokkur í Skógarböðunum þegar hugmyndin að eigin rekstri kviknaði. „Ég var í góðri og vel launaðri vinnu en þegar ég sá auglýsingu um matarvagn til sölu á Hólmavík ákvað ég að stökkva á það.“
Vagninn var þegar búinn tækjum til pönnukökugerðar (crêpes) þegar þau keyptu hann og þó svo að hjónin hafi lítið vitað um þá list í upphafi, lærðu þau hratt. „Við höfum bæði unnið við fjölbreytta ferðaþjónustu frá unga aldri, svo við náðum tökum á þessu fljótt.“


Íslensk hráefni í aðalhlutverki
Hugmyndafræðin að Fjaka crêperie er einfaldleiki og gæði. „Við notum næstum eingöngu íslensk hráefni þar á meðal staðbundna osta, skinku, reyktan lax og rækjur. Það eina sem kemur að utan er bananar og Nutella en við getum hreinlega ekki verið án þess,“ segja þau og hlæja. Það sem skilur vagninn þeirra frá mörgum öðrum er áherslan á ferskleika og heimagerða vöru og leggja þau metnað sinn í að bjóða upp á mat sem er unninn frá grunni.
„Öll deig og allar sósur hjá okkur eru heimagerðar. Við kaupum ekkert tilbúið út úr búð og það er eitthvað sem við erum gríðarlega stolt af,“
Sömuleiðis fara þau óhefðbundnar leiðir þegar kemur að tækjabúnaði miðað við dæmigerða skyndibitavagna. „Við erum einn af fáum matarvögnum sem nota hvorki örbylgjuofn né djúpsteikingarpott. Okkur þykir raunverulega vænt um heilsu og vellíðan viðskiptavina okkar og viljum bjóða upp á alvöru bragðgóðan mat.“
Þau leggja mikið upp úr því að flækja hlutina ekki of mikið. Hver pönnukaka inniheldur að hámarki þrjú til fjögur hráefni sem vinna fullkomlega saman.
Vinsælustu réttirnir á matseðlinum:
- Nutella-pönnukakan: Klassík sem svíkur engan.
- Lax og dill: Með reyktum laxi, spínati, sýrðum rjóma og fersku dilli.
- Rækjupönnukaka: Borin fram með hvítlauks-, sítrónu- og parmesan-sósu.
- Tiramisu-pönnukakan: Sannkallað lostæti sem slegið hefur í gegn hjá ferðamönnum.
Opna fyrr en áður
Þetta er þriðja starfsárið þeirra og þrátt fyrir krefjandi vetur á Norðurlandi ætla þau að halda úti þjónustu í rúma níu mánuði á ári. Í ár opnuðu þau fyrr en áður eða strax í febrúar. Utan háannatíma verða þau með opið á milli 11:30 og 15:00.“
Þrátt fyrir að hafa starfað víða um heim, allt frá Kína til Ítalíu. Slavko segir að honum líði hvergi eins vel og á Íslandi. „Það er eitthvað í loftinu hérna sem veitir mér frið og hamingju.“
Þegar þau eru ekki að baka pönnukökur fer mestur tími í dæturnar tvær. Svo þegar tími gefst þá nýtur Karin þess að fara í gönguferðir á morgnana á meðan Slavko grípur í góða bók eða slakar á yfir tölvuleik þegar næði gefst.


COMMENTS