Ljósaganga gegn kynbundnu ofbeldi

Miðvikudaginn 25. nóvember næstkomandi fer fram ljósaganga á Akureyri í tilefni alþjóðlegs 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið hefst þann 25. nóvember og hefur ljósagangan á Akureyri verið haldin á upphafsdegi þess undanfarin ár líkt og nú.
Mæting á gönguna er við Ráðhústorg klukkan 16:30 og þaðan er gengið að Amtsbókasafninu þar sem Agnes Blöndal aðstoðarsaksóknari flytur erindi og nemendur frá MA og HA taka þátt.
Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbburinn Þórunn hyrna og fulltrúar nemenda og stúdenta í MA og HA. Bæjarstjóri Akureyrarbæjar og lögregluþjónar leiða gönguna og á Amtsbókasafninu bíða heitir drykkir og fróðleg erindi.
Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991.
Tímabil átaksins tengir á táknrænan hátt saman dagana 25. nóvember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn.
Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls ofbeldis og styðja við réttindi, réttlæti og aðgerðir gegn ofbeldi.
Hægt er að melda sig á Facebook viðburð göngunnar (smella hér).
Tengdar greinar
Uppfært: 15. nóvember 2026










