Lovísa Oktovía leiðir lista Viðreisnar á Akureyri

Lovísa Oktovía leiðir lista Viðreisnar á Akureyri

Félagsfundur Viðreisnar á Akureyri staðfesti í kvöld tillögu uppstillinganefndar um röðun á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, stjórnmálafræðingur og varaþingmaður leiðir lista Viðreisnar. Í öðru sæti er Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri Giljaskóla. Í þriðja sæti er Þóroddur Ingvarsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir og í því fjórða er Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri menningarmála hjá Akureyrarbæ. Allan listann má finna hér neðar.

„Viðreisn mun setja fókus á þjónustu við íbúa, með sérstaka áherslu á börn og skólamál,“ segir Lovísa Oktovía, oddviti Viðreisnar á Akureyri. „Við þurfum fjölbreyttari úrræði fyrir börn, bæði á skólatíma og utan. Það þarf líka að auka stuðning við okkar góða fagfólk sem vinnur með börnum. Hvað varðar samfélagið í heild, þá horfir Viðreisn á það að stíga inn í bæjarstjórn, í fyrsta sinn, með skýra sýn um hvernig Akureyri á að þróast. Við viljum að aðgengi íbúa að mikilvægri þjónustu sé í forgrunni. Við horfum líka mjög til nýrrar borgarstefnu um það hvernig umhverfið á að vera fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti. Við viljum stuðla að samfélagi, þar sem vel er tekið utan um fólk með mismunandi þarfir og væntingar til lífsins,“ segir í tilkynningu frá Viðreisn á Akureyri.

Sæti á listaNafnAldurStaða eða starfsheiti
1Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir34Stjórnmálafræðingur og varaþingmaður
2Elías Gunnar Þorbjörnsson45Skólastjóri
3Þóroddur Ingvarsson48Svæfinga- og gjörgæslulæknir
4Elísabet Ögn Jóhannsdóttir37Verkefnastjóri menningarmála
5Íunn Eir Gunnarsdóttir35Tómstunda- og félagsmálafræðingur
6Hjálmar Pálsson48Sölustjóri
7Unnur Pétursdóttir59Sjúkraþjálfari
8Vilhjálmur Kristjánsson60Framhaldsskólakennari
9Halla Rut Ákadóttir23Umönnun/aðstoðarmaður
10Magnús Hilmar Felixson41Deildarstjóri á leikskóla
11Þórey Sif Þórisdóttir34Flugmaður
12Axel Björnsson30Forritari
13Veronika Lalkova Bozhkova31Hjúkrunarfræðingur
14Halldór Jóhannesson63
Hafnarstarfsmaður og vélfræðingur
15Anna Svava Traustadóttir60Fótaaðgerðarfræðingur
16Árni Jón Erlendsson61Sérfræðingur í rafrænu eftirliti
17Arna Garðarsdóttir63Náms- og starfsráðgjafi
18Ólafur Ingimarsson55Yfirlæknir á bæklunarskurðdeild
19Eydís Arna S. Eiríksdóttir58Fv. móttökuritari
20Kristján Ingimar Ragnarsson59Leiðsögumaður
21Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir47Læknir
22Ingvar Þóroddsson73Heimilis- og endurhæfingarlæknir/ ellilífeyrisþegi

COMMENTS