Alþjóðadagur móðurmálsins er haldinn árlega 21. febrúar. Á Amtsbókasafninu á Akureyri verður haldið upp á daginn allan febrúarmánuð í ár. Hér að neðan má sjá dagskránna á safninu í mánuðinum.
Sýning í anddyri safnsins:
Skiptibókamarkaður fyrir erlendar bækur – bæði hægt að koma með bækur og taka bækur. Nú þegar er mikið úrval af bókum á pólsku, ensku, þýsku og frönsku gefins.
Taktu þátt – Orð á þínu móðurmáli:
- Hvernig segir maður hjarta á þínu móðurmáli?
- Hvernig segir maður knús á þínu móðurmáli?
- Hvaða tungumál talar þú? Merktu upprunaland tungumálsins á kortið!
Á sýningunni er upplýsingar um hvar er hægt að nálgast bækur á erlendum málum á Amtsbókasafninu og upplýsingar um samstarf okkar við Bókasafn móðurmáls.
Á sýningarborðinu við afgreiðsluna á 1. hæð er sýnishorn af fullorðinsbókum á erlendum málum sem við eigum á safninu til útláns. Þemaborð í Barnadeild er einnig bækur á erlendum málum. Á sýningarborðinu á 2. hæð eru skáldsögur á ensku.
Viðburðir
Laugardaginn 7. febrúar var fjölskylduföndur á safninu og við að máluðum krukkur og bolla og skreyttum þau með fána og orðum á okkar móðurmáli.
Fimmtudaginn 12. febrúar klukkan 16:30 verður sögustund á íslensku, spænsku, úkraínsku og pólsku og föndur á eftir.
Laugardaginn 21. Febrúar kl. 13 verður Tungumála hraðstefnumót þar sem hægt verður að kynnast móðurmálum fólks sem búa á Akureyri. Öll velkomin!


COMMENTS