Mikið hjólað á Grenilundi
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Alþjóðlegu hjólakeppninni Road Worlds for Seniors 2026 er lokið, alls tóku 7.374 eldri borgarar frá 14 löndum þátt í ár. Markmið viðburðarins er að hvetja til hreyfingar og efla félagsleg tengsl.
Íbúar Grenilundar höfnuðu í 74. sæti í heildarkeppninni yfir samanlagða vegalengd, í um 20. sæti miðað við meðalvegalengd hvers keppanda. Einn keppandi frá Grenilundi hjólaði samtals 547 kílómetra og hafnaði í 3. sæti meðal íslenskra karlkyns þátttakenda.
„Við á Grenilundi erum afar stolt af öllum sem tóku þátt og sýndu að aldur er engin hindrun þegar kemur að hreyfingu, dugnaði og keppnisanda. Innilegar hamingjuóskir til allra þátttakenda og við hlökkum til að taka þátt aftur á næsta ári,“ segir á vef Grýtubakkahrepps.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










