Miklar skemmdir eftir eldsvoða í iðnaðarhúsnæðiLjósmynd/RÚV – Kristófer Óli Birkisson

Miklar skemmdir eftir eldsvoða í iðnaðarhúsnæði

Slökkvilið Norðurþings var kallað út upp úr klukkan sex í morgun vegna elds í iðnaðarhúsnæði í jaðri Húsavíkur. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang skíðlogaði í kaffistofu hússins.

Í samtali við RÚV segir Henning Þór Aðalmundsson, slökkviliðsstjóri, að tjónið sé mikið. Suðurhluti hússins er ónýtur og miklar hita- og reykskemmdir urðu í bílasalnum, þótt tekist hafi að koma í veg fyrir að eldurinn sjálfur breiddist þangað inn.

Ekkert fólk var í húsinu en þar voru geymdir bílar, tæki og verkfæri. Slökkvistarfi er lokið en vakt verður við húsið fram eftir degi til að fylgjast með aðstæðum.

COMMENTS