Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa á sunnudaginn

Næstkomandi sunnudag, 15. nóvember, er Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Á Akureyri verður haldin athöfn við Hjalteyrargötu 12.
Dagurinn er haldinn til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni og ekki síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á unga vegfarendur.
Dagskrá hefst klukkan 14:00 við Hjalteyrargötu 12
Þyrla landhelgisgæslunnar lendir
Myndataka viðbragðsaðila
Heimir Ingimarason flytur When I Think of Angels
Gunnar Már Gunnarsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar flytur ávarp
Emma Agneta Björgvinsdóttir flytur reynslusögu sína
Séra Sindri Geir Óskarsson flytur hugvekju og stýrir einnar mínútu þögn
Broddi Pálmi Ottesen Pétursson lögreglumaður flytur ávarp
Boðið verður upp á kaffi, kakó og með því.
Þau sem mæta á einkabílum eru beðin um að leggja á bílastæði Samherja. Einnig er fólk beðið að sýna tímabundnum lokunum í kringum Hjalteyrargötu 12 vegna þyrlulendingar skilning.
Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum klukkan 14 á minningardaginn.
Facebook viðburður minningardagsins er https://www.facebook.com/share/1PsQFHi4Gv/
Tengdar greinar
Uppfært: 12. nóvember 2026










