MTR er stofnun ársinsMynd/sameyki.is

MTR er stofnun ársins

Niðurstöður í vali á Stofnun ársins 2025 voru tilkynntar á hátíð Sameykis í Reykjavík í gær, þann 12. febrúarar, þar sem Menntaskólinn á Tröllaskaga hlaut titilinn Stofnun ársins. Þetta kemur fram á vef skólans.

Titlana Stofnun ársins hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í níu þáttum að mati starfsfólks þeirra. Þættirnir níu eru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti.

Stofnun ársins nær til 35 þúsund starfsmanna á opinberum vinnumarkaði og tilgangurinn er fyrst og fremst að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Útnefnt er í þremur flokkum og eftir fjölda á vinnustað og varð Menntaskólinn á Tröllaskaga í efsta sæti í flokki minni ríkisstofnana en í þeim flokki voru rúmlega 50 stofnanir. MTR hlaut því titilinn Stofnun ársins í þeim flokki og fékk hæstu einkunn allra þeirra 140 ríkisstofnana sem tóku þátt. Skólinn hefur nú verið í einu af efstu þremur sætunum í sínum flokki í rúman áratug þar af í efsta sæti fimm sinnum.

Lára Stefánsdóttir, skólameistari, og nokkrir kennarar skólans voru viðstaddir hátíðina í gær og veittu verðlaununum viðtöku.

Nánar á vef Sameykis.

COMMENTS