Námskeið fyrir foreldra með flóttabakgrunn

Fyrsti hópurinn á Akureyri hefur lokið MindSpring-námskeiði á vegum félagsþjónustu Akureyrarbæjar fyrir fólk á flótta. MindSpring er jafningjafræðsla að danskri fyrirmynd fyrir foreldra með flóttabakgrunn og miðar að því að veita þeim fræðslu og stuðning við að ala upp börn í nýju landi. Greint er frá á vef bæjarins.
Fyrsti hópurinn var skipaður spænskumælandi foreldrum frá Venesúela. Námskeiðið fór fram einu sinni í viku í níu vikur og var stýrt af spænskumælandi þjálfara frá Venesúela ásamt ráðgjafa úr samræmdri móttöku flóttafólks. Túlkur var einnig til staðar til að tryggja gott samtal og miðla upplýsingum um íslensk lög, reglur og samfélagsleg viðmið.
MindSpring-námskeið fyrir úkraínska foreldra er einnig hafið og stefnt er að því að bjóða upp á námskeiðin reglulega á Akureyri.
„Markmiðið er að efla foreldra og veita þeim þekkingu og verkfæri til að takast á við breyttar aðstæður,“ segir á vef bæjarins.
Tengdar greinar
Uppfært: 16. nóvember 2026










