MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Nikolaj Hansen í raðir KA

Eftir Ingólfur Stefánsson·
niko-sida
kaffid.is

Danski framherjinn Nikolaj Hansen skrifaði í dag undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA á Akureyri. Þetta kemur fram á vef félagsins í dag.

„Hann hefur verið einn besti leikmaður Íslandsmótsins undanfarin ár og klárt að hann mun styrkja lið KA mikið. Það er gríðarlega stórt að fá Nikolaj norður í gult og blátt og skýr skilaboð um að félagið ætlar sér strax aftur í deild þeirra bestu eftir vonbrigði sumarsins. Það er von okkar að gæði og reynsla Nikolaj muni bæði skila sér inn á vellinum sem og í því verkefni okkar að þróa áfram hina mörgu ungu og efnilegu leikmenn félagsins,“ segir í tilkynningu KA.

Nikolaj er 33 ára gamall og kemur til KA frá Víkingum í Reykjavík. Þar hefur hann leikið frá árinu 2017 og verið einn besti leikmaður deildarinnar ásamt því að vinna allt sem hægt er að vinna í íslenskum fótbolta. Hann hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari og fimm sinnum Bikarmeistari og er hann sigursælasti erlendi leikmaðurinn til að spila á Íslandi.

KA tilkynnti fyrr í dag um endurkomu Srdjan Tufegdzic sem þjálfara liðsins og á vef félagsins segir að það sé ljóst að afar spennandi tímar séu framundan á brekkunni með komu þeirra tveggja.

Sjá einnig: Túfa nýr þjálfari KA

Tengdar greinar

Uppfært: 13. nóvember 2026