Norðurorka afhendir styrki til samfélagsverkefna 2026Ljósmynd: Axel Þórhallsson

Norðurorka afhendir styrki til samfélagsverkefna 2026

Fimmtudaginn 5. febrúar, fór fram afhending á styrkjum Norðurorku til samfélagsverkefna vegna ársins 2026. Athöfnin fór fram í Menningarhúsinu Hofi.

Í nóvember 2025 auglýsti Norðurorka eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrir árið 2026 alls bárust 73 umsóknir. Styrkir voru veittir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála. Markmið með styrkjunum er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Fimm manna vinnuhópur (skipaður starfsfólki NO) fór yfir umsóknirnar og varð niðurstaða hópsins að veita styrki til 40 verkefna. Flest verkefnanna tengjast fræðslu og stuðningi annarsvegar og íþróttum, útivist og lýðheilsu hinsvegar, menning og listir eru þó einnig áberandi. Sem dæmi þá voru veittir styrkir til afreksíþróttafólks, fræðsludags um einhverfu hjá 18 ára og eldri, kvennasögugöngu um Glerárþorp, íþróttaæfinga fyrir börn með sérþarfir, þjóðbúningagerðar, sögusýningar um skíðamennsku á Tröllaskaga og foreldrastuðnings þar sem stutt er við foreldra með geðsjúkdóma.

Á vefsíðu Norðurorku komu fram styrkþegar sem eru hér fyrir neðan:

COMMENTS