Nú fer hver að verða síðastur að sækja um pláss á Jólatorginu
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Umsóknarfrestur fyrir söluaðila til að sækja um pláss á Jólatorginu á Ráðhústorgi í ár rennur út 11. október.
Jólatorgið verður opnað í þriðja sinn laugardaginn 21. nóvember og verður opið allar helgar fram að jólum. Í skreyttum jólahúsum verður boðið upp á fjölbreyttan varning tengdan jólunum, með áherslu á gæðavörur á borð við mat, drykki, handverk og aðrar hátíðartengdar vörur.
Hægt er að sækja um hús fyrir eina eða fleiri helgar og leiguverðið er 20.000 kr. fyrir eitt hús eina helgi. Heimilt er að tveir söluaðilar deili húsi.
Sótt er um í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á Akureyri.is.
Allar upplýsingar um Jólatorgið og umsóknir má finna á jolatorg.is
Tengdar greinar
Uppfært: 7. október 2026










