Framkvæmdir hafa staðið yfir við sundlaug Svalbarðsstrandarhrepps í haust með það að markmiði að bæta aðstöðu fyrir sundlaugargesti. Áætlað er að endurbótum verði lokið fyrir sumaropnun 2026.
Búið er að koma fyrir nýjum potti fyrir og verður hann hluti af heildaruppfærslu á útisvæðinu þar sem nýtt dekk hefur verið lagt meðfram sundlauginni, nýja dekkið eykur bæði öryggi og aðgengi. Jafnframt hefur verið reistur nýr skjólveggur við laugarsvæðið sem tryggir betra skjól gegn vindi og bætir öryggi.


COMMENTS