Nýjar lóðir í Móahverfi kynntar verktökumMynd: Akureyri.is/Ragnar Hólm Ragnarsson

Nýjar lóðir í Móahverfi kynntar verktökum

Síðastliðinn fimmtudag, 16. mars, var haldinn sérstakur kynningarfundur fyrir verktaka á lausum lóðum í 1. áfanga Móahverfis. Rétt innan við 20 manns sóttu fundinn í Ráðhúsi Akureyrarbæjar og annar eins fjöldi fylgdist með í gegnum fjarfundarbúnað. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Á fundinum fjallaði skipulagsfulltrúi bæjarins, Pétur Ingi Haraldsson, um forsendur úthlutunar lóða, hvernig úthlutunarferlið gengur fyrir sig og hvaða lóðir er um að ræða í þessum 1. áfanga. Hæsta boði í byggingarrétt á tilgreindum lóðum verður tekið.

Töluverður fjöldi fyrirspurna um lóðaúthlutun til verktaka í þessu nýja hverfi hefur nú þegar borist skipulagsdeild Akureyrarbæjar og sýndu fundarmenn mikinn áhuga á því fyrirkomulagi sem verður viðhaft. Opið er fyrir tilboð í umræddar lóðir til hádegis fimmtudaginn 30. mars og klukkan 14 þann sama dag verða tilboðin opnuð.

Nánari upplýsingar um 1. áfanga Móahverfis og þær lóðir sem um ræðir.


UMMÆLI

Sambíó