Nýjar sjósundströppur við Sæborgarfjöru í Hrísey
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Framkvæmdum við nýjar sjósundströppur við Sæborgarfjöru í Hrísey er nú lokið. Aðeins merkingar eru eftir áður en aðstaðan er að fullu tilbúin. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar, þar segir einnig:
Við Sæborgarfjöru eru góðar aðstæður til sjósunds en þar liggja tröppur yfir grjótgarðinn og niður á ströndina. Sjósundsfólk nýtir sér gjarnan aðstöðuna í Íþróttamiðstöðinni í Hrísey, sem er í næsta nágrenni, til að fara í sturtu, gufu eða heitan pott eftir sundið.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










