MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ólafur Árni sigraði Sturtuhausinn

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
1794521036_for2
Ljósmynd: VMA· kaffid.is

Ólafur Árni Haraldsson, nemandi í hársnyrtiiðn, sigraði Sturtuhausinn – söngkeppni VMA í gærkvöld í Gryfjunni. Þetta kemur fram á vef VMA þar sem segir að hann hafi flutt lag Frank Sinatra, My way. Í öðru sæti varð Hildur Ósk Gunnarsdóttir með lagið Valerie og í því þriðja Embla Sól Allport með lagið Shallow. Sigurvegari í Sturtuhausnum skólaárið 2026-2027 verður fulltrúi VMA í Söngkeppni framhaldsskólanna vorið 2027.

Þessi átta lög voru flutt í Sturtuhausnum:

Embla Sól Allport – Shallow (Lady Gaga og Bradley Cooper)
Jóhanna Celina Jakobs – Ég á líf (Eyþór Ingi Gunnlaugsson)
Ólafur Árni Haraldsson – My way (Frank Sinatra)
Hildur Ósk Gunnarsdóttir – Valerie – (Amy Winehouse)
Sigrún Dalrós Eiríksdóttir – Life goes on (The Sundays)
Árvök Elín Ragnarsdóttir Snædal – The Crippled Lyon (Michael Nesmith and the first National Band)
Sólveig María Svava Haraldsdóttir og Hildur Ósk Gunnarsdóttir – Linger (The Cranberries)
Þórarinn Böðvarsson – Líttu sérhvert sólarlag (Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson)

Kynnar á Sturtuhausnum voru Guðmar Gísli Þrastarson og Kristdór Helgi Tómasson. Dómarar kvöldsins voru Anna Skagfjörð, Ágúst Þór Brynjarsson og Rúnar Eff.

Tengdar greinar

Uppfært: 13. nóvember 2026