Opnað fyrir umsóknir í sjávarútvegsfræði og stjórnun
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Auðlindadeild og Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri hafa ákveðið að opna fyrir umsóknir í þrjár námsleiðir með námsbyrjun á vormisseri 2027. Um er að ræða BS nám í sjávarútvegsfræði við Auðlindadeild og framhaldsnám í stjórnun við Viðskiptadeild.
Ekki verður opnað fyrir umsóknir í aðrar námsleiðir við háskólann um áramótin. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember.
Opið er fyrir umsóknir í eftirfarandi námsleiðir:
- Sjávarútvegsfræði BS
- Stjórnun MM
- Stjórnun MS
Tengdar greinar
Uppfært: 15. nóvember 2026










