Á morgun, fimmtudaginn 6. nóvember, verða haldnir opnir kynningarfundir um skipulagsmál á Akureyri í Menningarhúsinu Hofi. Klukkan 15 verður fundur fyrir fagaðila um skipulags- og lóðamál, með áherslu á uppbyggingu íbúðabyggðar. Allir fagaðilar, svo sem byggingaverktakar, fasteignasalar, mannvirkjahönnuðir og aðrir sem koma að uppbyggingu á einn eða annan hátt eru velkomnir en skráning er þörf. Klukkan 17 verður síðan opinn fundur fyrir íbúa og alla sem hafa áhuga á skipulagi á Akureyri. Kynning á stöðu mála og því sem er framundan og verða umræður í kjölfarið.
Halla Björk Reynisdóttir, formaður skipulagsráðs, og Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsfulltrúi, fara yfir það sem er á döfinni í skipulagsmálum með áherslu á uppbyggingu íbúðabyggðar. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs, og Guðríður Friðriksdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs, fara yfir helstu framkvæmdir á vegum Akureyrarbæjar.
Nánari upplýsingar á Akureyri.is


COMMENTS