Á dögunum barst Menntaskólanum á Akureyri vegleg gjöf í Skólasjóð frá Jónu Hammer stúdent frá MA árið 1962. Hugmyndir að ráðstöfun fjárins lúta að betrumbótum á aðstöðu fyrir nemendur í skólanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum, þar segir einnig:
Jóna er doktor í enskum 19. aldar bókmenntum og skrifaði doktorsritgerð sína um eftirlíkingar á íslenskum fornsögum í verkum Rider Haggard. Hún hefur einnig þýtt á ensku mikið af íslenskum þjóðsögum og gefið út bókina ,,Memoirs of an Icelandic Bookworm” þar sem hún lýsir lífinu á Akureyri á uppvaxtarárum sínum og tengir þjóðsögurnar inn í veraldarheim bókhneigðra barna. Hún kenndi ensku við Duquesne University I Pittsburgh og stýrði þar enskudeild fyrir útlendinga allan sinn starfsaldur, auk þess sem hún kenndi íslensku við University of Pittsburgh í hjáverkum í nokkur ár.
Árgangurinn hennar hefur verið afar duglegur að hittast og reynir nú að koma saman árlega.


COMMENTS