Ríflega 50 nýsveinar fengu afhent sveinsbréf
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Þann 4. nóvember síðastliðinn fengu ríflega 50 nýsveinar afhent sveinsbréf sín við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
„Það er ætíð hátíðleg stund þegar nýsveinar fá afhent sveinsbréf sín, sem er um leið staðfesting á fullum starfsréttindum í viðkomandi iðngrein,“ segir á vef VMA.
Afhent voru sveinsbréf í húsasmíði, vélvirkjun, prentsmíði, kjötiðn, hársnyrtiiðn og bifvélavirkjun. Flestir voru nýsveinarnir í húsasmíði. Margir af nýsveinunum lærðu sínar iðngreinar við VMA.
Þessar myndir voru teknar við afhendingu sveinsbréfanna.
Tengdar greinar
Uppfært: 12. nóvember 2026










