Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Ritlistakeppni og ritlistakvöld á LYST

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
lyst
kaffid.is

Miðvikudaginn 4. nóvember getur ungt fólk á aldrinum 16–25 ára, sem hefur áhuga á ritlist, komið saman, kynnst skrifum annarra og jafnvel lesið upp eigin verk á kaffihúsakvöldi Ungskálda. Viðburðurinn fer fram á LYST í Lystigarðinum og er hugsaður sem upphitun fyrir úrslit í ritlistakeppni Ungskálda 2026. Veitingar verða í boði fyrir skráða gesti og eru öll velkomin. Kynnir kvöldsins er Guðmar Gísli Þrastarson, nemandi í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Samhliða viðburði Ungskálda stendur nú yfir ritlistakeppni haustsins fyrir sama aldurshóp. Keppnin hófst 1. október og er síðasti skilafrestur til miðnættis þann 1. nóvember. Engar hömlur eru settar á innsenda texta, hvorki varðandi efnistök né lengd, en þeir þurfa að vera frumsamið hugverk á íslensku. Vegleg peningaverðlaun eru í boði fyrir efstu þrjú sætin.

Nánari upplýsingar og skráningarform má finna á www.ungskald.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 29. október 2026