Rúður brotnar í Eyjafjarðarsveit
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Tvær rúður við gamla leikskólann/þinghúsið í Eyjafjarðarsveit voru brotnar þegar starfsfólk kom til vinnu eftir síðustu viku.
Á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar eru send út vinsamleg tilmæli til allra sem búa í hverfinu að ræða á sínu heimili um að bera þurfi virðingu fyrir því sem er í kringum sig, af hvaða tagi sem það er.
Ef einhver hefur upplýsingar um hver/hverjir voru að verki má láta vita af því í síma 463-0600/463-0615, í tölvupósti á esveit@esveit.is eða í gegnum Ábendingar á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Tengdar greinar
Uppfært: 13. nóvember 2026










