SA afhenti KAON 1.150.000 krónur

Síðasta laugardag fór fram bleikur 100 kr. leikur SA Víkinga gegn SR. Aðgangseyrir var 100 krónur gestum var frjálst að leggja meira af mörkum til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Höllin var full og SA vann leikinn 6–0.
SA afhenti í dag Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis allt það sem safnaðist á leiknum eða 1.150.000 króna, sem renna óskiptar til félagsins. Framlögin héldu áfram að berast eftir að ávísunin var prentuð og því er upphæðin enn hærri en upprunalega var gefið til kynna.
„Innilegar þakkir til allra sem mættu, keyptu happdrættismiða, köstuðu pekkjum eða lögðu sitt af mörkum. Sérstakar þakkir til Eltech ehf og Múrey ehf. sem gerðu leikinn mögulegan og til allra sem hálpuðu okkur við að láta þetta ganga upp. Við vissum hvað SA samfélagið og Akureyringar gætu gert, en þið fóruð fram úr öllum okkar væntingum,“ segir í tilkynningu frá SA á Facebbok.
Tengdar greinar
Uppfært: 29. október 2026





