SA sigrar SR í framlengingartíma
Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·

Skautaéfelag Akureyrar mætti Skautafélagi Reykjavíkur í Toppdeild kvenna í íshokkí í gærkvöldi. Úr varð æsispennandi leikur sem SA-konur sigruðu með naumindum, 5-4.
Fyrst um sinn hélt SA góðu forskoti en SR tókst að jafna leikinn í þriðja leikhluta. Sunna Björgvinsdóttir tryggði SA-konum sigurinn með marki í framlengingartíma.
Mörk SA
1–0 Silvía Rán Björgvinsdóttir (Berglind Huld Ríkarðsdóttir og Sólrún Assa Arnardóttir)
2–1 Guðrún Ásta Valentine (Sunna Björgvinsdóttir)
3–1 Guðrún Ásta Valentine (Sunna Björgvinsdóttir)
4–3 Herborg Geirsdóttir (Sunna Björgvinsdóttir og Silvía Rán Björgvinsdóttir)
5–4 Sunna Björgvinsdóttir (Silvía Rán Björgvinsdóttir og Magdalena Sulova)
Tengdar greinar
Uppfært: 22. nóvember 2026










