MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Sala á geymsluþolnum mat eykst eftir bækling almannavarna

Eftir Ingólfur Stefánsson·
F4A7105-copy
kaffid.is

Sala á hrísgrjónum og dósamat hefur aukist um 100 prósent og sala á eldspýtum um 200 prósent hjá Bónus eftir útgáfu bæklings almannavarna Verum viðbúin. Geymsluþolinn matur hefur rokið út eftir útgáfu bæklingsins sem kom út 3. nóvember síðastliðinn.

Honum er ætlað að veita almenningi upplýsingar um hvernig sé hægt að undirbúa sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi. Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir fólk greinilega ætla að vera viðbúið.

„Mér sýnist þessi umræða hafa fengið marga til að kíkja í eldhússkápana og velta fyrir sér hvað sé til heima. Við sjáum að minnsta kosti töluvert meiri eftirspurn eftir vörum sem geymast vel. Það þarf að huga að birgðunum eftir að þær eru komnar í hús, svo að maturinn fari ekki til spillis. Allur er varinn góður,“ segir hann.

Björgvin minnir fólk á að gleyma vörunum ekki þegar þær eru komnar inn í skáp. „Velja mat sem heimilisfólkið borðar hvort sem er, kíkja reglulega á dagsetningarnar og nota það elsta fyrst. Góður viðbúnaður ætti ekki að enda í meiri matarsóun.“

Tengdar greinar

Uppfært: 13. nóvember 2026