Sara Fusco, aðjúnkt við Lagadeild Háskólans á Akureyri, hlaut hin virtu Aota Masaaki-verðlaun 2026 fyrir besta erindi ungrar manneskju í vísindum. Verðlaunin voru afhent um miðjan febrúar á 40. alþjóðlegu ráðstefnunni um Okhotskhaf og heimskautshöfin sem haldin var í Japan. Þetta kemur fram á vef HA, þar segir einnig:
Sara hlaut verðlaunin fyrir erindi sitt „From Rights on Paper to Arctic Policy in Practice: Indigenous Participation and Energy Transition“. Í erindinu sem hún fjallaði um þátttöku Sámi-fólksins í stefnumótun þriggja norðurslóðaþjóða.
Aðspurð um viðurkenninguna segist Fusco afar þakklát. „Það er mér mikill heiður að hafa hlotið Aota Masaaki-verðlaunin 2026 fyrir besta erindi ungs vísindamanns. Í erindi mínu fjallaði ég um þátttöku Sámi-fólksins í stefnumótun á norðurslóðum og þær kerfislægu áskoranir sem réttindi frumbyggja mæta í grænu orkuskiptunum.“
Sara bætir við að það hafi gert viðurkenninguna sérstaklega ánægjulega að hafa kynnt rannsóknina á vettvangi sem jafnan er tileinkaður náttúruvísindum. „Það er sérstaklega ánægjulegt að þessi viðurkenning komi frá jafn vísindalega þenkjandi vettvangi. Að færa umræðu um réttindi frumbyggja og stjórnskipuleg álitaefni inn í slíkar umræður gerði augnablikið enn stærra.“
Sem aðjúnkt við Lagadeild kennir Sara stúdentum í heimskautarétti (e. Polar Law) ásamt því að kenna samanburðarrétt og mannréttindarétt við Lagadeild. Sara lauk sjálf meistaraprófi í heimskautarétti frá HA árið 2019. Hún er með MA-gráðu í samanburðarrétti frá Háskólanum í Flórens og lauk nýverið diplómanámi í mannöryggi og sjálfbærni frá Institute of International Political Sciences (ISPI). Auk fræðistarfa sinna gegnir hún starfi ritstjóra hjá Icelandic EJournal of Nordic and Mediterranean Studies (Journal of Nordic and Mediterranean Studies).


COMMENTS