Akureyringurinn Sonja Lí Kristinsdóttir er óvænt komin með þátttökurétt á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu. Hún verður fimmti keppandi Íslands á leikunum.
Sonja var kölluð inn í íslenska hópinn eftir að Ísland fékk úthlutað aukasæti í alpagreinum kvenna. Sætið fékkst vegna stöðu landsins á alþjóðlegum stigalista Ólympíuleikanna en Ísland er þar með 3.028 stig.
Sonja, sem verður tvítug á árinu, er núverandi ríkjandi Íslandsmeistari í svigi. Hún mun keppa í í stórsvigi sunnudaginn 15. febrúar og svigi 18. febrúar, eins og Elín Elmarsdóttir Van Pelt.


COMMENTS