Starfamessa haldin í áttunda sinn

Starfamessa haldin í áttunda sinn

Starfamessa er haldin í áttunda sinn af náms- og starfsráðgjöfum í grunnskólum á Akureyri í samstarfi við HA og SSNE. Messan verður haldin þann 12. mars í húsakynnum HA. Markmiðið með starfamessunni er að kynna fjölbreytt störf þar sem nemendur fá tækifæri til að auka víðsýni hvað varðar framtíðarmöguleika. Um það bil 800 nemendur á Norð- Austurlandi sækja viðburðinn en einnig er tilvalið fyrir aðra áhugasama að nýta sér tækifærið að kynna sér fjölbreytt fyrirtæki og störf.

COMMENTS