MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Stofnun félagasamtaka um björgun Kristnesspítala

Eftir María Pálsdóttir·
IMG_3054
kaffid.is

Þann 1. nóvember næstkomandi verða liðin 99 ár frá vígslu Kristneshælis í Eyjafirði. Eins og alþjóð veit er ástand hússins slæmt og búið að loka endurhæfingunni.

Við erum ansi mörg sem viljum leggja okkar á vogarskálarnar svo gert verði við húsið og endurhæfingunni haldið áfram á þessum fallega og heilandi stað með skóginn fyrir ofan og sérstaka endurhæfingarsundlaug innanhúss. Endurhæfingin er mikilvæg fyrir allt Norður- og Austurland.

Liður í þeirri baráttu er að stofna félagasamtökin Björgum Kristnesspítala þann 1. nóvember kl 17 á Hælinu setri um sögu berklanna. Athöfnin hefst fyrir utan með varðeldi og heitu kakói og svo fer stofnfundur fram með samþykktum félagsins og kosningu í stjórn. Markmið félagsins er að þrýsta á þar til bær yfirvöld að halda áfram með endurhæfingu á Kristnesi og byrja að safna fyrir endurbótum.

Með vinsemd og virðingu

Fyrir hönd hóps sem berst fyrir málstaðinn

María Pálsdóttir

Tengdar greinar

Uppfært: 16. október 2026