Stórsigur SA og allur ágóði rennur til Krabbameinsfélagsins

SA Víkingar unnu stórsigur á SR í íshókki í Skautahöllinni á Akureyri um helgina. SA Víkingar spiluðu í bleikum treyjum í tilefni bleiks októbers og allur ágóði af aðgangseyri, pekkjakasti og happdrætti á leiknum fer til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
Leiknum lauk með 6-0 sigri SA Víkinga og mikil stemning var í höllinni.„Fullkomið kvöld, við þökkum kærlega fyrir stuðninginn,“ segir á samfélagsmiðlum Skautafélags Akureyrar.
Birkir Einisson, Ormur Jónsson, Hafþór Sigrúnarson, Daniil Fursa skoruðu eitt mark hvor og Unnar Rúnarsson gerði tvö mörk.
SA Víkingar komust í fyrsta sæti í Toppdeild karla í íshokkí með sigrinum með 12 stig. SA hefur leikið 6 leiki, tapað einum í venjulegum leiktíma og öðrum eftir framlengingu. SR er með 11 stig en eiga leik til góða.
Aðgangur á leikinn kostaði aðeins 100 krónur og gestum var svo frjálst að leggja meira af mörkum til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.
Söfnunarreikningur er 0162-05-261155 kt. 630295-2709
Tengdar greinar
Uppfært: 19. október 2026










