Svava Björk kennir á Krubbi

Svava Björk kennir á Krubbi

Nýsköpunartóninn verður sleginn taktfast inn í dagskrá Krubbsins sem fer fram 20. – 21. mars, þar sem Svava Björk nýsköpunarstjóri Háskólans á Akureyri, Hugmyndasmiður, fjárfestir, uppistandari, fyrirtækjaeigandi og nýsköpunarsérfræðingur hjá Drift EA fer yfir mikilvægi hugarflugs sem og tól og tæki í nýsköpun.

Svava Björk kom aftur inn í norðlenska samfélagið með krafti fyrir tveimur árum þegar hún var ráðin til Háskólans á Akureyri.  Háskólinn er í samstarfi við DriftEA og Hraðið með það að markmiði að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir frumkvöðla og sportafyrirtæki á Norðurlandi og brúa bilið milli háskóla, rannsókna og atvinnulífs. Þar lætur hún til sín taka á jákvæðan hátt, en hún er ekki einungis öflug í að hvetja aðra til dáða og setja sér markmið, heldur fylgir hún sjálf eigin ráðum og ætlar í kvöld að haka við einn punkt á markmiðalistanum sínum og stíga á stokk sem uppistandari á Kaffi Lyst!

Svava er einn af skipuleggjendum Krubbs fyrir hönd Háskólans á Akureyri og þjálfari fyrir þátttakendur ásamt fleira öflugu fólki. Á Krubbi er nýsköpunarhugsun kennd og þjálfuð, ýtt undir hugmyndaauðgi og frumkvæði. Er þetta t.d. gert með því að tvinna gagnadrifinn innblástur í dagskrána og nota raunverulegar áskoranir sem þátttakendur fá að spreyta sig á, en ýmsir reyndir mentorar og þjálfarar aðstoða þátttakendur í leit sinni að vörum og svörum. Jafnframt fá þátttakendur aðstoð við að mynda og starfa í teymi og pitch-þjálfun.

Áskorun eitt: Hvernig gerum við bæi betri fyrir börn?
Hvernig verður Akureyrarbær enn betri fyrir börn?


Áskorun tvö: Opni glugginn
Áskorun þar sem öll mega lofa hugmyndafluginu að ráða og leggja fram hugmyndir – stórar sem smáar. Hér eru engar rangar hugmyndir, aðeins tækifæri til að sjá hlutina í nýju ljósi og prófa nýjar leiðir. Ertu kannski að æfa þig fyrir Norðansprotann?


Þátttaka í Krubbi er opin öllum á aldrinum 16-99 ára, gjaldfrjáls og engin fyrri kunnátta nauðsynleg. Þá þarf ekki heldur að mæta með hugmynd, en það má. Eða eins og Stefán Pétur í Hraðinu og forsprakki Krubbs orðar það ,,Verið velkomin með okkur í hugarflug, við pökkum fyrir ykkur innblæstri, reynslu og þekkingu í bakpokann.“


Af hverju heitir þetta eiginlega Krubbur?
,,Hugmyndahraðhlaupið dregur nafn sitt af Krubbi og svokölluðu Krubbsveðri sem skapast í ákveðinni vindátt á Húsavík. Veðrinu fylgir svo mikill stormur að fólk heldur sig innan dyra meðan hann geysar. Vonast er eftir alvöru Krubbsstormi í hugum þátttakenda meðan á hlaupinu stendur!“

Nánari upplýsingar um Krubb má finna á heimasíðu SSNE: Ertu með hugmynd? | SSNE.is

COMMENTS