MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps mótmælir breytingum á Loftbrú

Eftir Ingólfur Stefánsson·
logo-flugvel
kaffid.is

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur lýst yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að endurskoða breytingarnar og tryggja raunverulegt samráð við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Svalbarðsstrandarhrepps sem má lesa í heild hér að neðan.

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps lýsir yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú. Loftbrú er mikilvægur þáttur í að jafna búsetuskilyrði og aðgengi landsmanna að þjónustu, enda er stór hluti sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu og menningarstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarstjórn telur mikilvægt að Loftbrú haldi raunverulegu verðgildi sínu og íbúar landsbyggðarinnar sitji við sama borð og íbúar höfuðborgarsvæðisins og staða þeirra íbúa skerðist ekki vegna breytinga á fyrirkomulagi verkefnisins. Sveitarstjórn gagnrýnir jafnframt að svo veigamiklar breytingar á mikilvægum byggðaaðgerðum séu boðaðar án víðtæks samráðs við sveitarfélög og íbúa þeirra svæða sem kerfið þjónar. Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps skorar á stjórnvöld að endurskoða boðaðar breytingar, tryggja raunverulegt samráð við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar og standa vörð um Loftbrú sem mikilvægt tæki til byggðarjöfnunar.

Tengdar greinar

Uppfært: 16. nóvember 2026