MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sveitastjórnarkosningar 2026

Tæp 30% kjörsókn á Akureyri klukkan þrjú

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·

Klukkan 15:00 í dag var kjörsókn komin í 29,57% prósent í Akureyrarbæ. Þá höfðu 4409 manns kosið, en alls eru 15.547 á kjörskrá. Í dag verður kjörsókn á Akureyri uppfærð reglulega á vef Akureyrarbæjar. Nýjar upplýsingar um þátttöku kjósenda verða þar birtar á klukkustundafresti yfir daginn. Sjá nánar hér.

Í hádeginu, klukkan 12.00 voru 1680 búnir að kjósa, sem nemur 11,29% þátttöku.

Kjörstaðir í Akureyrarbæ eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hríseyjarskóla og í Félagsheimilinu Múla í Grímsey. Kjörfundur hófst klukkan 9:00 í morgun og stendur yfir til klukkan 22:00 í kvöld. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey loka fyrr, en verða opnir til klukkan 17:30, nema allir kjósendur hafi skilað atkvæði fyrir þann tíma.

Átta framboð bjóða fram lista í Akureyrarbæ: Akureyrarlistinn (A), Framsóknarflokkurinn (B), Viðreisn (C), Sjálfstæðisflokkurinn (D), L-listinn, Bæjarlisti Akureyrar (L), Miðflokkurinn (M), Samfylkingin (S) og Vinstri hreyfingin, grænt framboð (V)

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026