Félag kvenna í atvinnulífinu rekur landsbyggðardeildir hringinn í kringum landið. Norðurlandsdeildin er starfandi að mestu á Akureyri.
Núverandi stjórn hefur lagt mikla áherslu á sýnileika og farið í mikla vinnu að vekja athygli á mikilvægi félagsins fyrir atvinnulífið á norðurlandi.
,,Það er alveg ótrúlegt að fylgjast með orkunni sem myndast þegar svona margar konur koma saman sem virkilega langar að hafa áhrif.” Segir Jóhanna Hildur Ágústsdóttir, stjórnarkona FKA norðurlands.
Félagið er með auglýsta viðburði á heimasíðu fka.is en þar má sjá alla viðburði út um allt land. Allar félagskonur geta því fylgst með spennandi viðburðum sem eru í gangi víðsvegar um landið og mætt á viðburði hjá öðrum deildum.
Deildin hélt nú á dögunum nýliðakynningu á Múlabergi á Hótel KEA þar sem tæplega 50 konur mættu.
,,Það var svo gaman að sjá konur á öllum aldri sem voru áhugasamar að kynnast starfinu frekar og þær eru hjartanlega velkomnar, það er nóg pláss. Við höfum líka verið að prófa nýjar leiðir til að ná til kvenna hérna á norðurlandi og komu margar góðar hugmyndir frá gestum nýliðakynningarinnar.”
Kynntir voru næstu viðburðir framundan en meðal annars er hópferð norðankvenna á Sýnileikadag FKA sem haldin verður í Arion Banka 18. Mars.


COMMENTS