„Það er sameiginlegt verkefni okkar að hlúa að þeim sem þurfa á aðstoð að halda“

Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæði sveitir einstaklingum og fjölskyldum sem glíma við fjárhagserfiðleika stuðning allt árið um kring. Eftirspurn eftir aðstoð hefur verið mikil undanfarin ár og ljóst að þörfin verður áfram veruleg nú þegar jólahátíðin nálgast. Opið verður fyrir umsóknir um jólaaðstoð frá 19. nóvember til og með 3. desember.
Velferðarsjóðurinn veitir neyðaraðstoð í formi inneignarkorta í matvöruverslanir til einstaklinga og fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu, frá Siglufirði til Grenivíkur. Með þessu vill sjóðurinn mæta brýnni þörf og tryggja að fólk sem á erfitt fjárhagslega hafi tök á að kaupa matvörur og aðrar nauðsynjar.
„Það er ljóst að margir eiga erfitt með að ná endum saman og fyrir sum heimili getur óvæntur kostnaður eða breyttar aðstæður haft veruleg áhrif á fjárhag fjölskyldunnar. Við finnum vel fyrir þessari þörf í starfi sjóðsins og mikilvægt er að fólk viti að hægt er að leita til okkar þegar aðstoðar er þörf,“ segir Guðný Jóna Þorsteinsdóttir, ráðgjafi hjá Velferðarsjóði Eyjafjarðarsvæðis.
Aðstoð allt árið um kring
Starf Velferðarsjóðsins á rætur að rekja til ársins 2013 þegar Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og Rauði krossinn við Eyjafjörð tóku höndum saman um jólaaðstoð. Samstarfið þróaðist með árunum og árið 2021 var Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis stofnaður. Síðan þá hefur starfsemin verið efld og nær nú til velferðaraðstoðar allt árið um kring.
Árið 2025 óskuðu um 450 fjölskyldur og einstaklingar eftir jólaaðstoð frá sjóðnum og vel yfir 1.000 úthlutanir voru á inneignarkortum það ár. Á þessu ári hafa mánaðarlegar úthlutanir frá janúar til október verið um 600 talsins og er jólaaðstoðin þá ótalin.
„Eftirspurnin eykst jafnan þegar líður að jólum og við gerum ráð fyrir að um 450 umsóknir berist vegna jólaaðstoðarinnar í ár. Fyrir marga skiptir þessi aðstoð sköpum og getur létt verulega undir á þeim tíma árs þegar útgjöld heimilanna eru gjarnan meiri en í hefðbundnum mánuðum“ segir Gígja Hólmgeirsdóttir, formaður stjórnar Velferðarsjóðsins.
Stuðningur samfélagsins skiptir sköpum
Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis byggir starfsemi sína á stuðningi fyrirtækja, félagasamtaka, stofnana og einstaklinga. Allt fé sem safnast rennur óskipt til aðstoðar efnaminni einstaklingum og fjölskyldum á svæðinu.
„Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem sjóðurinn nýtur frá samfélaginu. Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar hafa sýnt málefninu mikinn velvilja og án þeirra væri ekki mögulegt að sinna þessu mikilvæga hlutverki. Það er sameiginlegt verkefni okkar að hlúa að þeim sem þurfa á aðstoð að halda,“ segir Guðný Jóna.
Árleg fjáröflun sjóðsins er nú í fullum gangi og er sala Velferðarstjörnunnar ein af þeim leiðum sem nýttar eru til að afla fjár fyrir starfsemina. Hægt er að fá stjörnur m.a. í Heimilistækjum á Glerártorgi fram að jólum.
Þeir sem vilja styðja starf Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis geta lagt frjáls framlög inn á söfnunarreikning sjóðsins:
Reikningsnúmer: 0302-26-003533
Kennitala: 651121-0780
Einnig er hægt að hafa samband við sjóðinn í tölvupósti á jolaadstod@gmail.com.
„Velferð er verkefni okkar allra og hvert framlag, stórt sem smátt, getur skipt sköpum fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda.“

Tengdar greinar
Uppfært: 17. nóvember 2026










