Þriðjudaginn 17. febrúar kl. 16:15 heldur Lori Kent, listamaður og fræðimaður, þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis. Um fyrirlesturinn segir á vef Listasafnsins:
Í verkum sínum rannsakar Lori Kent tengsl lands, umhyggju og menningarlegrar tilveru. Hún vinnur með málverk, ljósmyndun og gerð smáhluta og kannar í listsköpun sinni hinar ýmsu birtingarmyndir náttúrunnar sem eru ýmist kúltiverðar, ímyndaðar eða í hljóðlátri spennu við borgarlífið. Nýleg verk hennar teygja sig inn á svið vistfræðilegrar og samfélagslegrar listsköpunar, þar sem þátttakendur eru virkjaðir í athöfnum sem byggja á athugun og athygli. Verkin varpa ljósi á það hvernig umhyggja, kyrrð og vistfræðileg meðvitund geta raungerst í daglegum kynnum við skóga, garða og jaðarsvæði.
Dr. Kent er fyrrum heiðurslektor í list- og listasögu við Hunter College í New York og er útskrifuð frá Teachers College við Columbia-háskóla. Verk hennar hafa notið stuðnings ýmissa stofnana, þar á meðal Fulbright-rannsóknarstyrks við Jan Matejko Listaháskólann í Kraká. Hún hefur tekið þátt í vinnustofum listamanna víða um heim og kynnt verk sín í gegnum útgáfur og opinbera fyrirlestra.


COMMENTS