Myndlistarmaðurinn Ólafur Sveinsson heldur fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri þriðjudaginn 3. mars kl. 16:15.
Í fyrirlestrinum mun Ólafur fjalla um feril sinn í myndlist og varpa ljósi á hvernig listamaður mótast í gegnum nám, reynslu og persónulega leit. Hann stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri og síðar í Lahti í Finnlandi og hefur á löngum og fjölbreyttum ferli haldið fjölda einka- og samsýninga hérlendis og erlendis.
Gestir fá innsýn í þróun myndmáls hans, helstu sýningar og verk, auk þeirra áhrifa og hugmynda sem hafa mótað hann sem listamann á undanförnum áratugum. Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.


COMMENTS