Tólf þreyttu sveinspróf í vélvirkjunÞau þreyttu sveinspróf í vélvirkjun um helgina - frá vinstri: Óskar Óðinn, Rafnar Berg, Lárus, Tristan Árni, Aðalbjörn, Bjarki Þór, Sóley Sandra, Auðbergur, Hafliði, Jörvi Blær, Birnir og Darri. Mynd: Hörður Óskarsson.

Tólf þreyttu sveinspróf í vélvirkjun

Um síðustu helgi fór fram sveinspróf í vélvirkjun í húsnæði málmiðnbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri, VMA. Að þessu sinni þreyttu tólf prófið en að jafnaði er sveinspróf í vélvirkjun tvisvar á ári, í febrúar og síðan aftur á haustin. Greint er frá á heimasíðu VMA þar sem má sjá þessar myndir sem Hörður Óskarsson, brautarstjóri málmiðnbrautar tók af próftökum í verklega prófinu.

Sveinsprófinu skiptist sem fyrr í skriflegt próf, smíðaverkefni, bilanaleitarverkefni, slitmælingarverkefni, suðuverkefni, frágang smíðaverkefnis og vinnuhraða við smíðaverkefnið og var hver þáttur metinn sérstaklega. Standast þarf alla prófþætti til að ljúka sveinsprófinu.

Próftakarnir, sem starfa hjá hinum ýmsu fyrirtækjum í sinni iðn, hafa allir stundað nám við VMA. Þeir eru:

Aðalbjörn Leifsson, Slippurinn Akureyri ehf.
Auðbergur Jónsson, Alcoa Fjarðaál
Birnir Kristjánsson, Vélvirki ehf.
Bjarki Þór Óskarsson, HD ehf.
Darri Rúnarsson, Vélvirki ehf.
Hafliði Hinriksson, G. Skúlason vélaverkstæði ehf.
Jörvi Blær Traustason, Vélvirki ehf.
Lárus Stefánsson, Kælismiðjan Frost ehf.
Óskar Óðinn Sigtryggsson, Slippurinn Akureyri ehf.
Ragnar Berg Agnarsson, PCC BakkiSilicon
Sóley Sandra Gunnlaugardóttir, Slippurinn Akureyri ehf.
Tristan Árni Eiríksson, Kælismiðjan Frost ehf.

COMMENTS