Tónlist fyrir Silo og Lóa 2 hljóðrituð í Hofi

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. Frá þessu er greint á vef Menningarfélagsins.
Hljómsveitin tók upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þættirnir eru framleiddir af Apple TV streymisveitunni og leikur Rebecca Ferguson aðalhlutverkið og hefur Akureyringurinn Atli séð um tónlist þáttanna frá upphafi.
Sömuleiðis hljóðritaði SinfoniaNord tónlist fyrir Lói – þú flýgur aldrei einn 2, framhald íslensku teiknimyndarinnar sem kom út árið 2018. Nýja myndin er samstarfsverkefni íslenskra og hollenskra aðila.
„Framundan eru svo enn meiri upptökur fyrir tölvuleik, kvikmyndir og sjónvarp. Með aukinni þátttöku SinfoniaNord í slíkum verkefnum skapast aukin atvinnutækifæri á Akureyri fyrir tónlistarfólk og tengir einnig tónlistarlíf bæjarins við kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu víða um heim,“ segir á vef Menningarfélagsins.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










