Ljósin tendruð á Ráðhústorgi á laugardaginn

Laugardaginn 21. nóvember verða ljósin tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi. Jólasveinar stíga á stokk, Barnakórar Akureyrarkirkju syngja og ævintýrapersónur úr veröld leikhússins bregða á leik. Bæjarstjórinn Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, flytja stutt ávörp. Salka Einarsdóttir, fjögurra ára, kveikir ljósin á trénu.
Dagskráin hefst klukkan 16:00 og sama dag verður Jólatorgið á Ráðhústorgi opnað en þar verður ýmis forvitnilegur varningur á boðstólum í níu fallegum jólahúsum.
Jólatorgið verður opið frá klukkan 15 til 18 á laugardaginn en síðan allar helgar fram að jólum frá klukkan 14 til 18 á laugardögum og 14 til 17 á sunnudögum.
Dagskráin laugardaginn 21. desember:
- Lúðrasveit Akureyrar spilar jólalög undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur
- Jólasveinar stíga á stokk með söng og leik
- Maddmma úr Skilaboðaskjóðunni, Hans og Gréta, Jóla-Lóla, Krýla og Vettlingur skemmta
- Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, flytja ávörp
- Salka Einarsdóttir kveikir ljósin á jólatrénu
- Barnakórar Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Guðnýjar Ölmu Haraldsdóttur við undirleik Péturs Nóa Stefánssonar
- Jólasveinar sprella og gefa gómsæta ávexti
Tengdar greinar
Uppfært: 17. nóvember 2026










