Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir tvennum Stabat Mater tónleikum nú á föstunni undir yfirskriftinni Mærin Mæra en það er tilvitnun í þýðingu Matthíasar Jochumssonar á ljóðinu; Stóð við krossin mærin mæra mændi á soninn hjartakæra. Báðir tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju kl 16, fyrri tónleikarnir þann 15. mars en þá verður flutt Stabat mater dolorosa eftir Giovanni Battista Pergolesi og seinni tónleikarnir viku síðar eða 22. mars og verður þá flutt Stabat Mater eftir Arvo Pärt og einnig frumflutt splunkunýtt verk Þorvaldar Arnar Davíðssonar um Síðustu orð Krists á krossinum.
Söngkonurnar Heiðdís Hanna Sigurðardóttir sópran og Erla Dóra Vogler mezzósópran syngja í verki Pergolesis ásamt strengjakvartett skipuðum Sofiu Fedorovych, Marteini Ingvasyni, Eydísi S. Úlfarsdóttur og Ásdísi Arnardóttur.
Erla Dóra og Ásdís koma einnig fram á seinni tónleikunum en aðrir flytjendur þá eru Hlín Pétursdóttir Behrens sópran og Úlfar Trausti Þórðarson tenór ásamt Mariku Alavere fiðluleikara og Kristínu Höllu Bergsdóttur víóluleikara.
Tónleikarnir eru styrktir af Tónskáldasjóði Rúv og Stefs, Kea, Tónlistarsjóði og Akureyrarbæ. Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög eru vel þegin.


COMMENTS