U18 lið Píludeildar Þórs Íslandsmeistarar
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Íslandsmót félagsliða U18 í pílukasti fór fram á Akranesi um helgina og þar tryggði lið Píludeildar Þórs sér Íslandsmeistaratitilinn. Mótið var haldið í fyrsta sinn um helgina.
Lið Þórs var skipað eftirfarandi:
Baltasar Ragnar Birgisson
Björn Helgi Ingimarsson
Júlían Máni Jóhansson
Andri Snær Hannesson
Breki Þór Sævarsson
Guðbrandur Bjarni Björgvinsson
Axel James Wright
Halldór Jarl Birgisson
Hrefna Lind Jónasdóttir
Rakel Málfríður Egilsdóttir
Hópurinn kom sér í forystu á fyrsta keppnisdegi með 153 stig og tryggði sér sigurinn í gær með 233 stig.
Hrefna Lind Jónasdóttir vann auk þess einmenningskeppni í stúlknaflokki og svo tvímenning ásamt Rakeli Málfríði Egilsdóttur.
Frábær árangur hjá þessu unga og efnilega pílufólki.


Tengdar greinar
Uppfært: 5. október 2026










