Tómas Breki Baldursson, nemandi í 5. bekk í Hrafnagilsskóla, lauk nýverið við að skrifa sína fyrstu bók sem er tólf kaflar að lengd og tók það Tómas um það bil mánuð að skrifa hana.
„Áhuginn á skrifunum kviknaði út frá skólaverkefninu Bókmenntahátíð barnanna þar sem nemendur áttu að skrifa og gefa út sína eigin bók. Þá sækir Tómas einnig mikinn innblástur til eins af sínum uppáhalds rithöfundum, Ævars Þórs Benediktssonar, sem er betur þekktur sem Ævar vísindamaður. Tómasi finnst ritstörfin afar skemmtileg og hefur hann sett stefnuna á að verða rithöfundur í framtíðinni,“ segir á vef Hrafnagilsskóla.
Sagan fjallar um strák sem byrjar daginn eins og flesta aðra daga. Hann vaknar, fær sér morgunmat og mætir í skólann. Atburðarásin fer hins vegar á flug þegar menn mæta á svæðið með bréf. Þegar strákurinn les bréfið kemst hann að því að einhver þarf á hjálp hans að halda. Í kjölfarið flækist hann í ævintýri sem styðst við hrollvekjandi raunveruleika enda veit enginn hvað leynist handan trjánna.
Tómas er nú þegar byrjaður á næstu bók og stefnt er á að hún komi út í júlí. Sagan mun fjalla um gulan gormakall sem lendir í ýmsum ævintýrum. Nýja sagan gerist í Hrafnagilsskóla og munu skólafélagar koma þar við sögu. Tómas mun þó gæta þess að breyta bæði nöfnum og útliti nemendanna í sögunni.


COMMENTS