Uppselt á leik KA og Silkeborg – Mikilvægar upplýsingar til miðahafaMynd/KA

Uppselt á leik KA og Silkeborg – Mikilvægar upplýsingar til miðahafa

KA tekur á móti Silkeborg í síðari leik liðanna í 2. umferð Sambandsdeildar UEFA á fimmtudaginn (31. júlí) klukkan 18:00 á Greifavellinum. Uppselt er á leikinn en miðar verða afhendir í persónu í KA-heimilinu í dag frá kl. 15:00. Ekki verður notast við rafræna miða heldur þarf sá hinn sama og keypti miðana að mæta til þess að fá þá afhenda. Þetta kemur fram á vef KA, þar segir einnig

Með hverjum miða fylgir armband og er mjög mikilvægt að þegar mætt er á leikinn sé fólk búið að koma armbandinu fyrir á hendinni og geti sýnt miðann í leiðinni. Þetta er gert til að tryggja að ekki komist fleiri inn á völlinn en UEFA hefur gefið leyfi fyrir.

Hver miði er merktur sérstöku sæti og er ekki í boði að færa sig til í stúkunni, búið verður að merkja öll sæti í stúkunni og þurfa gestir að setjast í það sæti sem er skráð á þeirra miða.

Leikurinn hefst kl. 18:00 á fimmtudaginn og opnar KA-svæðið kl. 16:15 fyrir þá gesti sem eru með miða. Á svæðinu verður hamborgarasala og drykkjasala auk sælgætis og fleira og hvetjum við fólk til að mæta tímanlega. Fyrir þá sem ekki eru með miða á leikinn að þá er hann sýndur beint á Sýn Sport.

Athugið að gæsla mun þurfa að skoða bakpoka og töskur sem áhorfendur taka með sér á völlinn.

Einhverjir gestir eru með sérstakan VIP miða og fylgir þeim sérstakt armband.

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi afhendingu miða eða tengdu VIP miðum skal hafa samband við agust@ka.is.

COMMENTS